Ofnæmisviðbrögð við raka

Sveppamyndun af völdum raka hefur verið mikið rannsökuð og það hefur komið í ljós að hún veldur ofnæmisviðbrögðum hjá viðkvæmufólki. Rannsóknir sýna að sveppur er mun hættulegri en talið hefur verið. Auk þess að valda ýmsum ofnæmissjúkdómum, koma einkennin oft fyrst fram í slímhúð, kláði í augum, vandamálum því tengdum með linsur, stífluðu nefi, sviða í húð, höfuðverkjum, slappleika, þreytu, einbeitingarleysi og yfirleitt lélegri heilsu.

Rakavandamál í húsnæði getur bæði rýrt verðgildi þess sem og valdið ýmsum heilsfarsvandamálum.

Útveggir og burðarveggir soga vatn upp úr grunninum. Oft er þetta líka vegna steypuskemda, steypuskil eru léleg, eða steypan orðin svo gömul að hún er orðin opin og gljúp. Einnig vilja þakrennuniðurföll stíflast neðanjarðar án þess að fólk geri sér grein fyrir því eða lélegt dren.